12.9.2007 | 12:40
Esjan-Skálafell
Fórum þrír saman í stórskemmtilega ferð í næsta nágrenni Reykjavíkur. Nánar tiltekið frá Þverfellshorni og að Skálafelli. Þessi leið er um 22 km og að sjálfsögðu upp og niður.
Við hófum ferðina á hefðbundinni leið upp Þverfellshorn. Síðan lá leiðin uppá Hábunguna framhjá Hátindi yfir Laufskörð eftir endilöngum Móskarðahnúkum niður í Svínaskarð upp Skálfellið og niður að skíðaskála KR.
Þetta er mjög góð leið til æfinga fyrir lengri göngur og jafnframt er útsýni margbreytilegt. Það sést yfir allt höfuðborgarsvæðið og þegar áfram er haldið niður í Kjós, Mosfellsdalinn, Hvalfjörð og til Þingvalla svo eitthvað sé upp talið.
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Stupid questions:
1. Ertu búinn að fá uppfærsluna á kortið í GPS-tækið?
2. Mér var kennt að þetta hétu MóskarðAhnjúkar - er það eitthvert rugl?
Þetta hefur verið flott ferð!
kv. nördinn
Nördinn (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 13:47
Þetta var furðu erfitt og tafsamt, átta stundir held ég, aðallega vegna þess að leiðin eftir Esjunni er stórgrýtt og í flögugrjóti. Mikilvægt er að vera í góðum gönguskóm vegna ökklanna og að hafa stafi. En útsýnið og litirnir er það albesta og aðeins steinsnar frá bænum. Það skal tekið fram að við vorum sóttir í KR.
Ívar Pálsson, 12.9.2007 kl. 13:49
Móskarðshnúkar (án joðsins) er líklega rétta orðið skv. kortum. En Móskörðin eru amk. tvö, því væri Móskarðahnúkar ekki fjarri lagi. Athugum hjá Örnafnanefnd.
Ívar Pálsson, 12.9.2007 kl. 19:01
Það er rétt þeir heita víst Móskarðahnúkar. Laga það.
Stefán Bjarnason, 12.9.2007 kl. 21:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.