Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008
25.2.2008 | 09:51
Gagnheiði
Fór laugardaginn 23.02 á skíðum uppá Gagnheiði með Ívari á nýju skíðunum sínum. Gagnheiði er heiði sem menn villast stundum uppá þegar farið er á Botnssúlur frá Svartagili. Við villtumst að vísu ekki en vorum aðeins of ofarlega þegar við komum að Súlnagili. Þar sem veðurguðirnir voru ekki í sem bestu skapi ,og ég latur ,nenntum við ekki að krækja niðurfyrir gilið. Við breyttum því ferðinni í Skíðaferð á Gagnheiði.
Skíðafærið var ekkert sérstakt annaðhvort harðfenni eða mjúkur foksnjór. Enn þetta var ekta Ísland hífandi rok -7C og skafrenningur. Það gerist ekki betra. Fyrir viku renndi maður sér niður sléttar og sólbakaðar brekkurnar í Selva á Ítalíu. Nú voru það ósléttar og vindbarðar brekkurnar á Gagnheiði. Talsvert öðruvísi skíðamennska svo ekki sé meira sagt.
Síðasta myndin er af fyrirbæri sem nefnist rosabaugur. Rosabaugar myndast við ljósbrot í ískristöllum í háskýjum, oftast blikuskýjum. Þessir baugar sjást því aðeins ef einhver skýjahula er á himni. Ískristallarnir eru sexstrendingar og þegar ljósið fer í gegnum þá breytir það um stefnu, en misjafnlega mikið eftir því hvernig það fellur á strendinginn. Algengasta stefnubreytingin er 22 gráður, og þess vegna myndast hringur í þeirri fjarlægð frá tungli eða sól á himninum. Þetta gerist þótt ískristallarnir snúi á alla mögulega vegu í skýjunum; við sjáum samsafn ljóss sem fer gegnum þá kristalla sem hafa mátulega stefnu. (heimild Vísindavefurin)
Ívar Pálsson tók myndirnar sem fylgja og eru í albúminu.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 21:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar