9.10.2007 | 12:58
Berlínar Maraþon
Ich bin ein Berliner sagði Kennedy í frægri ræðu í Berlín 26. júní 1963. Þá voru tæp 2 ár frá byggingu Berlínarmúrsins. 44 árum seinna má segja að ég og yfir 80 aðrir Íslendingar hafi einnig verið Berliner þegar við hlupum rúma 42 km um götur þessarar sögufrægu borgar.(Real Berlin Marathon)
Hlaupið fór fram við bestu aðstæður, ekki of heitt lítil sól og engin vindur. Margir voru að setja persónuleg met, en ég var ekki einn af þeim. Það er í þessu eins og mörgu í lífinu að maður uppsker eins og maður sáir. En þetta var gaman eins og alltaf, frábær ferð með góðu fólki í skemmtilegri borg.
Setti inn nokkrar myndir í myndaalbúmið hér til hliðar. Ætla einnig að setja inn nokkur videó sem ég tók í hlaupinu þ.a. stemningin komi í ljós. Þau eru ér til vinstri á síðunni.
Annars er það eftirtekarvert í þeim stórborgum sem ég hef komið í til að fylgjast með eð taka þátt í maraþoni (London,Berlín,Boston,New York) hversu mikill viðburður þetta er á öllum þessum stöðum. Götum lokað heilu dagana, mikill áhorfendafjöldi, hljómsveitir og hálfgerð karnivalstemning. Allir jákvæðir.
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.